Frumkvöðlar í listum
Eru allir listamenn frumkvöðlar? Samkvæmt skilgreiningu þá er frumkvöðull sá sem fer ótroðnar slóðir og er forgöngumaður eða upphafsmaður að einhverju. Það sem ég vil telja að geri muninn á því að vera listamaður og að vera frumkvöðull í listum eru þau einkenni sem skilgreina frumkvöðul. Það eru einfaldlega sumir listamenn sem hafa meiri áhrif en aðrir og það eru ákveðnir listamenn sem ryðja brautina í ákveðinni týpu lista á ákveðnum tímapunkti og markar þarafleiðandi dýpri og markverðari spor í söguna en margur hinna. Dæmi um þetta sem ætti að lýsa viðhorfi mínu til þessa er upptaling nokkura þeirra nýrri sem ég tel að eru mestu áhrifavaldar okkar tíma. Þeir hinir sömu tel ég að flokkist undir að vera frumkvöðlar í því sem þeir eru að gera. Björk er auðvitað gott dæmi um það. Tónlist hennar hefur bæði verið nýjungagjörn og frumleg. Tónlist hennar hefur markað sér sína eigin leið í tónlistarheiminum og skapað henni orðspor sem líkist fáum öðrum. Hún á sinn eigin markhóp sem ekki er hægt að flokka í einhvern einn hóp. Hún telst til þeirra tónlistamanna sem margur reynir að feta í fótspor með einum eða öðrum hætti og er hægt að sjá áhrif tónlistar hennar víða í samtímanum. Fataval, búningaval, tónlistarmyndbönd, klipping, make-up, textagerð og markaðsettning er eitthvað sem hún hefur gert á nýjan hátt og má sjá áhrif þess víða einnig. Hún er að auki, og alls ekki til að vanmeta, ein af þeim tónlistarmönnum og reyndar kventólistarmönnum sem ekki bara hefur samið tónlist og texta heldur hefur einnig leikið og stjórnað upptökum. Hún hefur átt fyrirtækið, sem gaf tónlist hennar út, og markaðssetti og þar fram eftir götunum. Á þann hátt hefur hún verið öðrum fyrirmynd í því að koma ár sinni fyrir borð og geta margir og þó sérstaklega margar konur tekið hana sér til fyrirmyndar. Ólafur Elíasson er annar slíkur listamaður sem núna er flokkaður í hóp þeirra allra bestu í heiminum í dag. Hann er ekki bara listamaður, heldur hugsuður, hann er arkitekt og framleiðandi og nú þegar áhrifavaldur í umhverfissköpun, umræðu um list og menningu. Hann er líka atvinnurekandi og með verkefni út um allan heim. Nálgun sú sem hann ber á borð til almennings er eitthvað sem fáir hafa leikið áður né eftir. Vegna áhrifa sinna á samtímann og samfélög víðsvegar, og hversu mikil áhrif það eru sem hann er að hafa á marga mismunandi þætti samfélagsins, þá er ekki annað hægt en að kalla hann frumkvöðul í miðlun listar, menningar og almennrar umræðu um málefni sem tengjast hans áhuga og verkefnasviði. Gísli Örn Garðarsson og VESTURPORT er hópur sem hefur rutt brautina á ákveðin hátt á ákveðnu sviði innan leiklistar, kvikmyndalistar og annarri tengdri starfsemi. Hópurinn er einn af þeim allra iðnustu við að selja rétt og standa fyrir uppsetningu leikverka sem þau hafa haft veg og vanda af að koma upp á fjalir sjálf, eða með því að setja sín sterku sérkenni á leikverkið svo ekki sé hægt að líkja við annað sambærilegt. Hópurinn hefur fengið meira lof og lesti og meiri athygli en aðrir hópar sem verið hafa til staðar á markaðnum og þykir mér það merki um að verk Vesturports séu með einhverjum hætti að marka sér eigið upphaf í leik- og kvikmyndasögunni. Mugison , Eivör eru bæði gott dæmi um tónlistarfólk sem ryður braut sem frumkvöðlar hver á sínu sviði. Mun ég reyna að fjalla meira um þau síðar.
14 atriði um Frumkvöðla
1. Frumkvöðull fer ótroðnar slóðir – ef hann gerði það ekki, þá væri hann ekki frumkvöðull. 2. Reynslan hefur sýnt fram á að margir af þeim þekktari frumkvöðlum hafa margir hverjir þurft að glíma við erfiða fortíð sem markað hafa sín spor í viðhorof þeirra til lífs og starfs. 3. Frumkvöðull hefur oft á tíðum gaman af því að ögra samfélaginu, en oft þá ögrar hann án þess að það hafi verið meiningin, heldur miklu frekar vegna þess að hann telur sig tilneyddan. 4. Frumkvöðull er oft fólk sem er mjög skapandi, þó ekki alltaf, en oftast. 5. Það að vera frumkvöðull er ekki samasemmerki þess að ná árangri, og ekki öllum frumkvöðlum tekst að ná markmiðum sínum, eða að lifa af því að vera frumkvöðull, margir hafa aldrei fengið einu sinni að njóta sín. 6. Frumkvöðull þarf á góðu samstarfsfólki að halda til að eiga líkur á að ná takmarki sínu, oft getur það verið einn erfiðasti hjallinn að yfirvinna, því fáir sýna því skilning sem frumkvöðullinn er að vinna að. 7. Frumkvöðull er oft á tíðum óþolinmóður einstaklingur. 8. Þó svo að orðið sé karlkyns þá er ekkert samasem merki millli þess að vera karl og frumkvöðull, konur geta líka verið frumkvöðlar og margar frægari en aðrar, Ophra og Marhta Steward er gott dæmi um það. 9. Frumkvöðull getur átt það til að vera óskipulagður og vaða úr einu í annað, það er bæði einn af hans sterkustu kostum en einnig verstu göllum. 10. Það kemur fyrir að frumkvöðull á erfitt með að klára hluti sem hafnir eru, til þess þarf hann á góðu samstarfsfólki sem heldur honum við efnið. 11. Frumkvöðlar eru oft ómenntaðir eða lítið menntaðir einstaklingar, það hefur ef eitthvað er, gert það að verkum að þeim hefur tekist ætlunarverk sitt frekar en hitt. Þeir hafa ekki verið búnir að taka langa skólagöngu í því að læra um það sem er hægt og það sem er ekki hægt, heldur hafa þeir bara fylgt innsæi sínu og framkvæmt, og það er það sem málið snýst um. 12. Oft er það tilhugsunin um fjárhagslegt sjálfstæði, eða það að verða ríkur, sem drífur frumkvöðla áfram, en oft er það svo að allt annað drífur þá áfram. Reynslan hefur líka sýnt fram á að mjög margir frumkvöðlar hafa verið miklir hugsjónamenn sem hafa viljað betrumbæta samfélagið og veröldina sem þeir lifa í. 13. Eitt af einkennum þeirra frumkvöðla sem hafa verið hvað farsælastir í því sem þeir hafa gert er að hafa hæfileikan til að geta hrifið fólk með sér. Að geta byggt upp eftirvæntingu í tengslum við verkefnið sem fær alla til að leggja extra mikið á sig til að ná takmarkinu. Þetta er oft á tíðum nauðsynlegt til að verkefnið verði að veruleika. 14. Frumkvöðull sem kann að fá fólk í lið með sér – gengur betur en sá sem á erfitt með það. Síðast uppfært ( Thursday, 31 January 2008 )