Nýsköpun í fyrirtækjum
Nýsköpun er mikilvægur hlekkur í þróun fyrirtækis samhliða þróun markaðar. Nýsköpun er eitt atriði af mörgum í rekstri fyrirtækja samhliða fjármálastjórn, markaðssetningu, sölumennsku, framleiðslu og þjónustu. Nýsköpun má orða með öðru orði og það er nýþróun. En það er líka hægt að tala um þróun en hún gæti átt við annarskonar þróun eins og t.d. starfsmannaþróun, veltuþróun, markaðsþróun, vélaþróun og stærðarþróun og þessháttar. Nýþróun er orð sem hefur ekki verið mikið notað en í raun skýrir orðið nýsköpun æði vel. Það er líka í því samhengi sem klárlega verður ljóst innihald og forsendur þess að stunda þróun eða nýþróun. Fyrirtæki getur klárlega þróast í gegnum tíma á misjöfnum forsendum. Spurningin sem þó eftir stendur er sú; hvort er fyrirtækið að þróast í kjölfar markaðar, með markaði eða á undan markaði? Hvort er fyrirtækið að þróast í að verða stærra eða betra? Hvort er fyrirtækið að þróast í framleiðslumagni eða framleiðslugæðum? Hvenær er talað um neikvæða þróun og jákvæða þróun? Það sem ég tel skipta máli í tengslum við nýsköpun (nýþróun) er grundvallarþáttur í velgengni fyrirtækja. Þetta eru þættir sem hafa verið sannaðir víða um heim síðastliðin ár með árangri sem eigi verður horft fram hjá. Hér mun ég nefna nokkra: 1. Fyrirtæki sem er nýskapandi er fyrirtæki sem lærir af eigin mistökum og er því hæfari en ella til að takast á við ný verkefni hvaðan sem þau koma. 2. Fyrirtæki sem tekur áhættu er líka fyrirtæki sem gerir ráð fyrir áhættu og hefur því hæfileika til að aðlaga sig að breyttum markaðsaðstæðum með auðveldari hætti en það fyrirtæki sem aldrei tekur áhættu. 3. Fyrirtæki sem er á undan öllum hinum með lausn, vöru eða þjónustu, sem markaðnum líkar, er fyrirtæki sem vex hraðar og meira en hin sem á eftir koma. 4. Fyrirtæki sem byggja á nýjum lausnum, góðri vöru, góðri þjónustu og skilja þarfir markaðarins, eiga auðveldar með að eignast “trúaða“ viðskiptavini. 5. Fyrirtæki sem leggur stund á nýsköpun fær jákvæðara viðmót og lærir betur að meta þarfir viðskiptavina sinna, en það fyrirtæki sem heldur áfram í sama gír án nýsköpunar. Nýsköpun er ekki að kaupa nýja vél sem framleiðir meira og nýsköpun er ekki að stela hugmyndum annarra. Nýsköpun er enduruppgötvun á þeirri þekkingu og getu fyrirtækisins og þörfum mögulegra viðskiptavina og áhættuskapandi vöru og þjónustu; þróun til að þóknast nýjum þörfum framtíðarinnar.
Skilgreiningar
- HUGVITSMAÐUR “Inventor” (someone who is the first to think of or make something) þýðir “uppfinningamaður/hugvitsmaður”, þ.e. sá sem finnur upp ný tæki, nýjar aðferðir eða nýja þjónustu.
- FRUMKVÖÐULL ”Innovator” (to begin or introduce something new. Someone who helps to open up a new line of research or technology or art) þýðir “frumkvöðull”, þ.e. athafnamaður sem drífur áfram nýjung. Það getur verið uppfinninga-/hugvitsmaðurinn sjálfur en þarf ekki að vera það, heldur athafnamaður sem er í samvinnu með uppfinningamanninum.
- ATHAFNAMAÐUR, FRAMKVÆMDAMAÐUR, BUSINESSPERSÓNA “Entrepreneur” (a risk-taker who has the skills and initiative to establish a business) þýðir “athafna- eða framkvæmdarmaður” en ekki í tengslum við uppfinningu.
Nýsköpun
Fróðleikur um nýsköpun Orðið nýsköpun er heita orðið í dag. Orðið er notað yfir allt sem nýtt er t.d í fyrirtæki þó að fyrirtækið hafi jafnvel fengið hugmyndina að láni frá einhverju öðru fyrirtæki t.d erlendis frá. Þannig getur fyrirtæki farið fjálglega með orðið nýsköpun hjá sjálfum sér þó svo að það eina sem það gerði var að taka til sín hugmynd sem var að virka í öðru landi. EN….nýsköpun getur líka þýtt margt annað og verður hér á þessari síðu reynt að gera þessu orði skil hvort heldur sem um er að ræða þjóðfélagslega nýsköpun, nýsköpun í fyrirtækjum, eða nýsköpun af hendi nýskapandi einstaklinga sem oftan eru nefndir frumkvöðlar eða hugvitsmenn.