Af hverju námskeið fyrir frumkvöðla?
Sýnt hefur verið fram á að með því að bjóða upp á sérhæfð námskeið og stuðning við frumkvöðla og nýsköpunarfólk eru meiri líkur á að verkefni þeirra nái tilætluðum árangri. Frumkvöðlar uppgötva ný tækifæri en það er óþarfi að finna upp hjólið. Hann getur því einbeitt sér að því að slípa til það hjól sem hann er með í gangi sjálfur og notið svo reynslu þeirra sem á undan hafa farið með aðrar sambærilegar hugmyndir og verkefni.
Eins og sýnt er á þessu grafi hér fyrir neðan samanstendur ferillinn frá hugmynd að reksturs fyrirtækis af nokkrum þáttum sem þörf er á að farið sé í gegnum til að árangur náist.
Mín kenning og mín nálgun til þessa ferils felst í að aðstoða frumkvöðulinn eins snemma í ferlinu og hægt er, og gera honum því kleift að sortera og skilgreina sína hugmynd með betri hætti og komast lengra með hana án mikils kostnaðar. Að mínu mati hefur þessi þáttur verið vanræktur í aðstoð þeirri sem hefur verið í boði fram að þeim tíma.
Draumur eða martröð?
Signý. Signý og Sigyn Eiríksdætur skrifa um fjárfestingar lífeyrissjóða í sprotafyrirtækjum
Nú þegar bankarnir eru flestir farnir á hausinn og mörg fyrirtæki á Íslandi í kröggum eða gjaldþrota hefur umræða um sprotafyrirtæki og frumkvöðla verið áberandi. Þau eru von hins nýja Íslands. Nú á að styðja við bakið á þessum fyrirtækjum og fjárfesta í þeim. En er það alltaf til góðs að fá inn stóra fagfjárfesta í sprotafyrirtæki? Er ekki ýmislegt sem ber að varast þegar slík tímamót verða hjá fyrirtækjum sem ætla að stækka sig og efla?
Hvað ber að varast?
Af eigin reynslu og eftir að hafa rætt við forsvarsmenn nokkurra frumkvöðlafyrirtækja höfum við komist að því að margt ber að varast þegar fagfjárfestar koma inn í sprotafyrirtæki. Eitt af því sem þarf að gæta að er að gleyma sér ekki í gleði og trausti þegar draumurinn um aukið fjármagn verður að veruleika. Frumkvöðlar hafa í flestum tilvikum vini og vandamenn á bak við sig sem fjárfesta og hafa því byggt fyrirtæki sitt á trausti og samvinnu samheldins hóps. Þeir gera sér oft ekki grein fyrir því að fagfjárfestarnir hafa gríðarlegan fjölda lögfræðinga og annarra aðila á sínum snærum. Þeir eru oft hópur fólks sem hikar ekki við að beita alls kyns klækjum í viðskipum. Aðstandendur sprotafyrirtækja eru því í fæstum tilvikum viðbúnir því viðskiptasiðferði sem beitt er strax í upphafi samstarfs, eða í raun frá þeim degi sem skrifað er undir.
Nokkur dæmi um vinnubrögð fagfjárfesta eru t.d. að hafa samninga á mjög flókinni ensku þannig að sem fæstir skilji þá. Hlutabréfin eru höfð í nokkrum flokkum til að auka flækjustig, þeir koma því þannig fyrir að þeir hafi í raun algjör yfirráð yfir fyrirtækjum jafnvel þótt eignahluti þeirra sé innan við 20%, menn eru þvingaðir til að skrifa undir íþyngjandi aukasamninga þegar breytingar verða á rekstri og sem minnst er bókað á stjórnarfundum þannig að ekki sé hægt að vitna í ágreining. Þeir tryggja líka að helst allir sem koma að fyrirtækinu komi úr þeirra röðum (endurskoðendur, stjórnarmenn, lögfræðingar o.s.frv.). Frjóu fólki er ýtt út úr rekstrinum, jafnvel sjálfum frumkvöðlunum, og fjárfestarnir laga fyrirtækin að eigin hugmyndafræði, í stað þess að nýta áfram þann kraft sem kom fyrirtækinu á laggirnar í upphafi. Þeir krefjast ákvæða í hluthafasamkomulagi um að geta gengið út úr fyrirtækinu eftir vissan tíma og geta krafist þess að fyrirtækið kaupi þá út á forsendum sem þeir hafa sjálfir mest um að segja, þannig að frumkvöðlar og fyrri eigendur geti jafnvel lent í þeirri stöðu að missa fyrirtækið úr höndum sér til fagfjárfestisins.
Þannig getur fagfjárfestir sem gefur sig út fyrir að koma inn í þessi fyrirtæki með sérþekkingu til að styrkja þau og hraða vexti þeirra haldið þeim í heljargreipum og valdið þvílíkum glundroða og ósætti að fyrirtækið ber þess jafnvel aldrei bætur. Og þetta eru því miður ekki bara vangaveltur, heldur raunveruleg dæmi.
Hverjir eru fagfjárfestar og hvaðan kemur fjármagnið?
Það eru nokkrir sjóðir sem koma með fjármagn inn í sprotafyrirtæki. Sumir hafa aðgang að peningum frá stærstu lífeyrisjóðum landsins ásamt öðrum fjárfestum. Eins merkilegt og það er þá hafa lífeyrissjóðirnir í mörgum tilfellum afsalað sér öllu valdi og rétti til afskipta af því sem fagfjárfestar gera í krafti peninganna sem þeir leggja til. Þótt lífeyrissjóðirnir leggi jafnvel fram 70% af fjármagninu eiga þeir engan fulltrúa í stjórn þess sjóðs sem ákveður hvernig unnið er með hverju og einu sprotafyrirtæki. Það að lífeyrissjóðir komi að þeim sjóði sem fjárfestir í fyrirtækinu þínu er þar af leiðandi ekki trygging fyrir því að eðlilegir viðskiptahættir séu stundaðir, því miður. Lífeyrissjóðunum virðist þannig í raun standa á sama um hvernig sjóðsverðir þeirra standa að samningagerð og rekstri þeirra fyrirtækja sem fjárfest er í. Það virðast ekki vera lagðar línur um hvernig standa skuli að fjárfestingum og þeir beita sér ekki fyrir því að sanngirni og gagnsæi sé haft að leiðarljósi. Allt virðist vera leyfilegt fyrir hrægamma viðskiptalífsins, meira að segja núna árið 2009. Lítið hefur breyst. Sömu gömlu græðgisgildin eru enn í hávegum höfð.
Hvernig er hægt að varast klæki?
Því miður sýnir reynsla allt of margra frumkvöðla að engu er hægt að treysta um að þeir verði meðhöndlaðir af réttsýni og sanngirni þegar stórir fjárfestar koma að fyrirtækjum þeirra. En málið er í raun einfalt. Ef fjárfestir er ekki tilbúinn að taka neina áhættu þegar hann kemur inn í fyrirtæki en krefst þess að hafa allt sitt á þurru og ætlar að tryggja að hann fái alltaf sitt hvað sem gengur á, þá er einfaldlega betra að sleppa því að taka hann inn. Innganga í fyrirtæki á slíkum forsendum er aðeins til að slökkva alla gleði og samstarfsanda innan hluthafahóps og verður í raun til þess að fyrirtæki missa flugið og starfsorkan fer meira og minna í lögfræðiálit og þras um rétt hluthafa. Stjórnarfundir verða pínlega leiðinlegir og hluthafafundir leysast upp í rifrildi þar sem lögfræðingar sitja á rökstólum.
Slík staða er martröð hvers frumkvöðuls og því er brýnt að hann kynni sér allar þær gildrur sem hægt er að leggja fyrir hann í samstarfinu. Báðir aðilar verða að standa jafnfætis þegar kemur að samningaborðinu og í raun þyrftu frumkvöðlar að hafa aðgang að færum aðilum á þessu sviði í upphafi viðræðna og vera tilbúnir að eyða miklum tíma og fé í samningagerðina til að draga úr líkum á að komið verði aftan að þeim eftir að búið er að ganga frá öllum pappírum.
Ef frumkvöðlar eru ekki á varðbergi frá byrjun er mikil hætta á að réttur þeirra verði fyrir borð borinn og að sanngirni og góðum siðum verði kastað fyrir róða. Það breytir engu þótt fagfjárfestarnir séu tilbúnir að koma fram í hvaða gervi sem er til að ná fram vilja sínum, jafnvel sem göfugir aðstoðarmenn frumkvöðlafyrirtækja sem vonast til að geta vaxið og dafnað.
Höfundar eru frumkvöðlar og hluthafar.
Fréttablaðið, 02. apr. 2009 06:00
Að hefja rekstur
Að byrja business er ekki einfalt eða auðvelt. Þú verður að geta séð nýjar lausnir á erfiðum tímum jafnt sem góðum. Hérna eru 10 atriði sem þú gætir fundið innra með þér sem gætu komið að notum.
1. Framsýni, framtíðarsýn (Vision). Án þess að hafa skýra mynd af því hvernig hugmyndin á að vera í framtíðinni, getur verið erfitt fyrir þig að skapa það. Hugsaðu um öll smáatriðin, gerðu hugmyndina raunverulega fyrir þér sem öðrum.
2.Ákveðni (Determination). Ertu viss um að þú viljir gera þetta? Vertu búinn að gera upp við þínar efasemdir áður en haldið er af stað. Vanalega þegar maður hefur skuldbundið sjálfan sig til einhvers, getur verið erfitt að snúa við og hætta við allt saman.
3.Líkamlegt form (Fitness). Þú hefur ekki efni á að verða veikur þegar þú vinnur fyrir sjálfan þig.
4. Andleg heilsa (Mental health). Ef andlega heilsan er ótrygg, getur orðið erfitt að sannfæra aðra um að slást í lið með þér eða að taka réttar ákvarðanir á réttum tíma.
5. Ást (Love). Nauðsynlegt að hafa einhvern sem styður þín plön og er tilbúinn til að lofa þér að gráta á öxlinni þegar þér gengur illa, en gleðjast með þér þegar þér gengur vel.
6. Fjármagn (Cash). Það kostar alltaf sitt að stofna fyrirtæki og það tekur alltaf tíma að koma því í gang, með því að hafa fjármagn til verkefnisins, helst án vaxta, eru meiri líkur á að verkefnið nái fótfestu.
7. Sveigjanleiki (Flexibility). Þú þarft að geta gert allt sem snýr að rekstri fyrirtækisins, allt frá því að fara með ruslið og gera við og svo auðvitað verið inni í sem flestu sem viðkemur rekstrinum.
8. Húmor (Humour). Þú átt eftir að gera mistök, það gera allir, en eiginleikinn til að geta hlegið að því, lært af því og halda áfram, er mikilvægur.
9. Varkárni (Caution). Stundum er auðvelt að sjá tækifæri en ekki sjá vandamálin sem eru framundan. Að geta verið varkár er mikilvægur eiginleiki.
10. Örlæti (Generosity). Þegar þér gengur vel, fjárfestu í þeim sem hjálpuðu þér að koma þér þangað sem þú ert kominn, þá ertu viss um að þú getir sótt stuðning þeirra aftur ef þarf.
Heimildir fengnar úr bókinni “The Entrepreneur’s book of Checklists eftir Robert Ashton.