Ef þú ert að fara að skila inn viðskiptaáætlun, nú eða drögum að viðskiptahugmynd í keppni eins og Gullegginu hjá Innovit þá er gott að hafa það á hreinu hvaða atriði skipta máli þegar hugmyndin er sett fram á texta. Hér vil ég koma með nokkur þeirra striða sem V6 telur skipta máli og geta haft afgerandi áhrif ef viðskiptahugmyndin er á annað borð góð og áhugaverð að öðru leiti. Það fyrsta sem þarf að hafa í huga er hvert vandamálið er við núverandi ástand á þeim markaði sem viðskiptahugmyndin ætlar að sækja inná. Oft getur verið gott að hefja textann á lýsingu á þeirri stöðu, þeim aðstæðum sem eru til staðar, eða þeim forsendum sem móta vandamálið. Þarna er auvitað mikilvægt að átta sig á því með hvað hætti lýsa á viðskiptahugmyndinni sjálfri, og gott ef lýsing á þvi hvernig hún á að leysa vandamálið, passar inn í lýsinguni á vandamálinu sjálfu. Um leið og búið er að lýsa stöðu mála í dag , þá er einnig gott ef hægt er að koma fram með einhverjar tölulegar staðreyndir, um orð einhvers í fjölmiðlum, eða bókum, eða rannsóknum eða einhvers sem hefur eitthvað vægi sem hægt er að setja fram til að undirbyggja rökin fyrir því afhverju þessi lausn sé tímabær og nauðsynleg. Gott er að hafa í huga að öll framsetning verður að byggja á og vísa til einhverra tölulegra staðreynda, einhverra haldbærra raka (forsendna) sem ekki er hægt að fara í umræður um út frá skoðunum hvers og eins, heldur einungis að þarna eru um óhrekjanlegar staðreyndir að ræða. Um leið og þetta er komið, þarf að fara inn í það hversvegna hugmyndin er kominn fram núna, hver er forsagan, og forsendan fyrir því að akkúrat þessir einstaklingur/ einstaklingar eru að fara í gang með verkefnið. Gott er ef þessir einstaklingar geta sýnt fram á góða og mikilvæga teningu við verkefnið t.d. ef um hugbúnaðarverkefni er að ræða, þá verður allavega einn aðili að hafa nokkuð góða þekkingu á hugbúnaðarmálum, eða álíka, svo ljóst sé af þeim sem lesa, að líkur séu á því að hugmyndin komist áfram í þróun og framkvæmd. Ef hægt er að telja fram ýmsa kosti teimis, hugmyndar, tímapunktsins og annara atriða sem gera þetta verkefni spennandi, þá á hiklaust að setja það fram til að undirbyggja trúverðugleika verkefnis. Það er í lagi að setja hluti fram með bjartsýnum og pínu montinn hátt, svo lengi sem ljóst sé af lestri textanns, að teimið eða aðilin er algjörlega á jörðinni, heldur sig við raunverulegar staðreyndir og getur sýnt fram á djúpa þekkingu á málefninu og er með áætlun um framkvæmd sem er bæði raunhæf og byggir á nokkuð svartri sýn á framtíðar tækifæri. Þarna á ég við að oft er að talað um 3 mismunandi aðstæður út frá reiknismódeli. Besta mögulega sena, miðsenan og svo versta mögulega sena, sem þó er í jákvæða átt. Þarna er oftast gert ráð fyrir um og undir 10% markaðshlutdeildar á fyrstu t.d. 3-5 árum verkefnis. Ýmislegt fleira kemur til í lýsngu á góðri viðskiptahugmynd, en þetta ætti að vera góð byrjun að hafa í huga.